Víðivellir fremri/Sveinatunguhross
    <language>is</language>
Myndbönd frá því í desember af unghryssunum 
      <description>Hér set ég inn myndbönd af þrem 3vetra hryssum tekið upp í desember af Kristínu Lárusdóttur.Það eru þær Mörk Frá Sveinatungu undan Hnokka frá Þúfu og Gáru frá Sveinatungu. Mörk frá Sveinatungu - ýtið á linkinn hér til að sjá myndbandiðKvos frá Víðivöllum fremri undan Bút frá Víðivöllum fremri og Vörðu frá Víðivöllum fremriKvos frá Víðivöllum fremri - linkurKvísl frá Víðivöllum fremri undan Sólon frá Skáney og Duld frá Víðivöllum fremri Kvísl frá Víðivöllum fremri - linkurKnapar eru Guðbrandur Magnússon og Ásmundur Ásmundsson</description>
Fréttir af hrossum og fólki
      <description>Góðan daginn. Það er nú e.t.v.  kominn tími til að segja aðeins hvað hefur gerst undanfarna mánuði og hvað er  að gerast um þessar mundir. Fyrir jól var Hans Kerúlf með tvær hryssur frá okkur,  Braut 5 v. frá Víðivöllum fremri (undan Vörðu frá Víðivöllum fremri og Glym frá Innri-Skeljabrekku) og Auðsæld 4 v. frá Víðivöllum fremri (undan Glæðu frá Sveinatungu og Blæ  frá Miðsitju)  um miðjan desember skoðuðum við þær hjá Hans og þær komu svo heim í frí. Okkur leist bara vel á þær, Braut var vel vígaleg að okkur fannst og erum við spennt að sjá hvernig hún þróast áfram. Braut fór svo aftur til Hans eftir jólin ásamt Fjöl frá Víðivöllum fremri (undan Duld frá Víðivöllum fremri og Glym frá Innri-Skeljabrekku). En Auðsæld fer nú bara í gott frí þar sem hún er aðeins 4 v og þarf að þroskast betur, en hún fór betur af stað  heldur en var búist við, snyrtilegur gangur og gott tölt. Hér fyrir neðan er mynd og  myndband af Braut og einnig  mynd af Auðsæld, teknar í skoðunarferðinni  í desember.Auðsæld  4. vetra . Knapi Hans Kjerúlf                                ljósmyndari Dagrún DróttBraut 5 vetra og Hans Kjerúlf Braut frá Víðivöllum fremri - klikka á tengilinn til að sjá  myndbandsbrot af Braut sama dag. Braut frá Víðivöllum fremriFyrir jól voru við líka með  nokkur hross hjá Kristínu og Brandi á Syðri Fljótum, bæði í frumtamningu og þjálfun. Flest komu þau heim eftir áramótin , en ákváðum að halda áfram tamningu í vetur á Kví frá Víðivöllum fremri (undan Sonnettu frá Sveinatungu og Hnokka frá Þúfum)  hún sýnist efnileg, en er aðeins  4vetra .Hér fyrir neðan er smá myndbandsbrot sem þau Krístín og Brandur tóku fyrir okkur í desember eftir u.þ.b. tveggja mánaða tamningu.Kví frá Víðivöllum fremri - Klikkið á linkinn. Það koma fréttir af hinum hrossunum síðar. Um síðustu helgi keppti  Krístín Lárusdóttir á töltmóti í Reykjavík  ( Ískaldar töltdívur) á hryssu frá okkur sem hefur verið hjá þeim Brandi  og þau keyptu í sumar,  Aðgát frá Víðivöllum fremri 8.v.  (undan Vörðu frá Víðivöllum fremri og Gaum frá Auðholtshjáleigu) . Dagrún fór  að fylgjast með  hvernig þeim gengi  á fyrstu keppni þeirra saman, þeim gekk  ágætlega og urðu í 3 sæti í Opna flokknum. Við hlökkum til að sjá þetta nýja par þróast áfram. Hér eru nokkrar myndir sem Dagrún tók (þó ekki mjög góðar því stóra linsan var biluð). </description>
Jólakveðja
Fjöl
      <description>4ra vetra hryssan okkar hún Fjöl, undan Duld frá Víðivöllum fremri  og Glym frá Skeljabrekku var sýnd á kynbótasýningu á Stekkhólma í vor og á FM15, hún heltist í fordómi á FM 15 og gat ekki komið fram í yfirlitssýningu. Flís er efnileg vindótt klárhryssa sem við gerum ráð fyrir að temja áfram og sýna aftur næsta vor. Fleiri myndir af Flís og Hyggju, undan Mær frá Víðivöllum fremri og Gaum frá Auðholtshjáleigu á kynbótasýningunni  eru komnar í myndamöppu á heimasíðunni.Flís , knapi Hans Kjerúlf                                                                                       Mynd : Dagrún Drótt                                            </description>
Leirljós hryssa 
      <description>Fengum laglega  leirljósa hryssu undan Duld og Hræringi. Myndin var tekin  þegar Duld var sleppt í girðingu hjá Óskasteini frá Íbishóli.Valli, Duld og ónefnda hryssanEr klárinn ekki á leiðinni?</description>
Félagsmót og úrtaka fyrir FM15
      <description>Félagsmót Hestamannafélagsins Freyfaxa var haldið á Stekkhólma laugardaginn 20. júní sl. Þann dag var blíðskaparveður og það besta sem af er sumri. Mótið var einnig úrtaka fyrir FM15. Dagrún Drótt fór með 6 hross, þau Brúnka, Hyggju, Jökul, Glætu, Diktu og Eftirtekt í keppnina og gekk prýðilega með þau öll. Marimba var einnig skráð í B flokk, en missti skeifu og  braut úr hóf daginn  fyrir mótið og ekki var tími til að járna hana upp og var hún því afskráð. Brúnki  og Jökull voru í fyrsta sinni á keppnisvellinum og stóðu sig vel. Jökull varð í 7 sæti í úrslitum A flokks og Brúnki  nálægt því að komast í úrslit í B flokki. Dikta, Glæta og Eftirtekt urðu í 3,4 og 8 sæti í úrslitum  B flokks. Dagrún keppti einnig á Glætu og Eftirtekt í tölti áhugamanna og komst í úrslit með þær báðar. Valdi svo að keppa á Eftirtekt í úrslitum og varð þar í 3 sæti. Keppnin fór fram á einum degi og tölvert álag á hrossum að keppa í forkeppni og úrslitum sama dag, þar sem einnig var mjög heitt. Fleiri myndir af mótinu eru í myndalbúmi.Dagrún og Eftirtekt.  Dagrún Drótt og Glæta</description>
Völlur frá Víðvöllum fremri
      <description>Völlur frá Víðivöllum fremri 6.v, undan Víf frá Víðvöllum fremri og Kjarna frá Auðholtshjáleigu. Völlur er  í eigu Dönu Sigurðardóttur og Guðröðar Ágústssonar. Völlur keppti í B flokki á úrtökumóti/félagsmóti Freyfaxa um helgina og ávann sér rétt til að keppa á Fjórðungsmóti Austurlands 2015. Spennandi foli.Ljósmyndir: Hafrún Eiríksdóttir         knapi: Reynir Atli Jónsson</description>
Úlputíð
      <description>Snjólaust í Fljótsdal, en kalt hefur verið frá sumardeginum fyrsta. Vorverk af ýmsum toga, sauðburður í gangi og það þarf að sinna hrossum meðfram öðru, enda óvenju mörg inni á þessum tíma. Annað slagið eru teknar myndir og hér er Dagrún Drótt á hryssunni Eftirtekt. Eftirtekt er undan Sonnettu frá Sveinatungu og Gaum frá Auðholtshjáleigu. Fleiri myndir á myndasíðu.</description>
Sauðburður
      <description>Jæja nú er sauðburður hafin vel af stað hér á bæ, gengið nokkuð vel og lítið þurft að hjálpa. Hér má sjá nokkrar myndir frá því:(svo getið þið séð fleiri myndir í myndaalbúmi.)Hér heldur Valli á Móflekkóttri ferhyndri gimbur agarlega glaður með hanaNý fæddur hrúturHér er graddinn að skoða ferhyrnda móflekkóta hrútinn hans vallaLaukur alltaf til að spjallaOg hér eru uppáhalds systkinin hans Valla, Flott ekki satt?</description>
Jólakveðja 2013
Skúli 
      <description>Fyrr í vetur tókum við á leigu aðstöðu hjá Hrossaræktarsambandi Austurlands á Iðavöllum.  Dagrún og Valli voru með um 20 tamninga-og þjálfunarhross þar í 2 mánuði í góðri aðstöðu með aðgang á reiðhöllinni. Það eru um 30 km héðan í Iðavelli svo keyrslan var tölverð þennan tíma, en gott að temja tryppi í svo góðri aðstöðu sem þarna er. Hrossin komu heim aftur um miðjan mars. Nú styttist í sauðburð og lítill tími verður til að sinna hrossum og búið að draga undan nokkrum sem verður sleppt út þegar tíðin leyfir.Valli og Skúli. Skúli er undan Rönd og Þjótanda frá Svignaskarði      mynd Dagrún Drótt</description>
Marimba
      <description>Eitt af afkvæmum Hélu frá Valþjófsstað 1 er Marimba, 9 vetra hryssa undan Flygli frá Leirárgörðum. Ágæt hryssa sem Dagrún Drótt hefur séð um síðan í haust og tekst vel til með hana hjá Dagrúnu. Í gær keppti Dagrún á Kvennatölti Blæs með þrjár hryssur, Marimbu, Diktu og Glætu. Þær komust allar í úrslit, en þar má hver keppandi aðeins keppa með 1 hross. Dagrun  valdi svo Diktu (sem var efst eftir forkeppni) til að keppa í úrslitum. Marimba var í 2 sæti eftir forkeppni í tölti (meira vanar) á Kvennatölti Blæs 2013. </description>
Flans
      <description>Flans (okkar fyrrverandi) nýtur sín vel hjá nýjum eigendum, Hans Kjerúlf og Nikólínu Rúnarsdóttir. Þeir félagar Hans og Flans urðu í 4-5 sæti á Bautatölti og svo sigruðu þeir félagar bæði B-flokk og Tölt -opinn flokk á Ístölti Austurlands.Flans er undan Gusti frá Hóli og Hélu frá Valþjófsstað 1. Héla var undan Seim okkar og Heklu frá Uxahrygg II. Það komu nokkur tryppi í Fljótsdal frá Uxahrygg, þáverandi sóknarprestur Bjarni Guðjónsson var þaðan ættaður og stóð fyrir því ásamt áhugasömum hestamönnum úr dalnum að sækja hestefni á sínar heimaslóðir. Flest þessara tryppa reyndust prýðilega, voru góð reiðhross og hryssur sem voru í tryppahópnum hafa reynst vel í framræktun eins og Flans er gott dæmi um. Héla móðir Flans var ekki sýndi í kynbótadómi, en hafði  gott og fallegt tölt. Alsystir Flans er Víf, 1. verðlaunahryssa í okkar eigu. Hans Kjerúlf á Flans, Bautatölt 2013. Mynd Fax.isHans Kjerúlf og Flans á Ístölti Austurlands . Mynd Ismyndir.comVerðlaunaafhending B-flokkur. Ístölt Austurlands 2013. Hans Kjerúlf og Flans í 1.sæti</description>
Folaldasýning
      <description>Við fórum með 5 folöld á folaldasýningu  Hrossaræktarsamtaka Austurlands sem haldin var í Reiðhöllinni á Iðavöllum 29. desember sl. Rauð hryssa undan Vörðu og Bút varð í efsta sæti í hryssuflokknum og moldótt  hryssa undan Gáru og Hnokka frá Þúfum var valin eigulegasta folaldið.Mörk f. Hnokki frá Þúfum m. Gára frá SveinatunguKvos f. Bútur frá Víðivöllum fremri m. Varða frá Sveinatungu</description>
Jólakveðja 2012
Bútur á leið til Noregs
      <description>Valli og Gurri  hafa selt Bút  og er hann á leið til Noregs. Bútur er fæddur 2004,  undan Duld frá Víðivöllum fremri og Flygli frá Leirárgörðum. Mynd: Anja</description>
Tamningar
      <description>Hér á bæ eru hafnar frumtamningar og eru þau 5 talsins. Hér sjáum við Lísu frá Víðivöllum fremri hún er undan Búti frá Víðivöllum fremri og Rönd frá Sveinatungu.Hér sjáum við Höll frá Víðivöllum fremri hún er einnig undan Búti frá Víðivöllum fremri og Únsu frá Víðivöllum fremri.Hér sjáum við svo að lokum er nafnlaus frá Víðivöllum fremri undan Gára frá Auðholtshjáleigu og Vörðu frá Víðivöllum fremrisvo er annar hestu inni sem Frissi frændi á sem er undan Gaum og svo önnur meri sem heitir Athygli frá Víðivöllum fremri sem er einnig undan Gaum. Verður spennandi hvað verður úr þessum gæðingum. </description>
Vandræði
      <description>Það er eitthvað skrítið í gangi með síðuna okkar (og reyndar fleiri síður hjá 123.is), myndir týndar og allt í tómu tjóni. Vonandi verður þessu kippt í liðinn hið fyrsta.</description>
Flans
      <description>Flans hefur verið seldur.  Hann er undan Hélu frá Valþjófsstað 1 (Seimsdóttir) og Gust frá Hóli. Góður klárhestur sem býr yfir vekurð. Dagrún Drótt  hefur annast um hann og þjálfað og á áreiðanlega eftir að sakna hans, en hann er í góðum höndum hjá nýjum eigendum á Reyðarfirði.Flans og Dagrún Drótt, hitamóða yfir dalnum í ágúst 2012</description>
Skógarafurðir
      <description>Það er verið að grisja/bila skógarstykki hjá okkur. Rifjuðum upp í dag að Skotta og Hrefna Kristín á Skriðu hefðu plantað  í þetta stykki 1993, mestmegnis lerki en einnig dálítð af furu og svo síðar greni. Sum lerkitrén eru orðin verulega myndarleg og við fáum nokkuð af góðum stauravið , tré sem þeir Boggi og Kristján taka til hliðar og meðhöndla sérstaklega. Stauraefni og svo sést aftan á skógarhöggsmennina sem eru að yfirlíta unnið verk.</description>
Þetta óvænta
      <description>Þegar mætt var til að afhenda sláturlömb á fjárflutningabíl s.l. þriðjudagsmorgun heyrðist hjáróma jarm í réttinni þar sem ærnar höfðu verið vistaðar yfir nótt. Og....þar var nýfætt lamb hjá kind sem veiktist í vetur og hefur sennilega látið fóstri en fengið aftur.</description>
Fjárréttir
      <description>Að undanförnu hafa fjárleitir og réttir staðið yfir. Fyrstu göngum er þó ekki lokið. Múlamenn eru á fjöllum og eftir er að smala Hraun, Gilsárdal og Flatarheiði, auk nokkurra heimalanda.Fé í ValþjófsstaðaréttRekið til Melaréttar sl. sunnudag.</description>
Sónarskoðun og geldingar
      <description>Nú er sónarskoðun frá graðhestum lokið að mestu. Í fyrradag voru sónarskoðaðar hryssur sem voru hjá Hróð frá Refsstöðum,Reit frá Víðivöllum fremri og Alexander frá Lundum II.  Útkoman var misjöfn, en alls ekki hörmuleg.      Hjá Hróð voru 50% fengnar og jafnvel nokkrar í viðbót sem hafa fengið það seint að það sést ekki í sónartækinu. Nokkrar merar eru því aðeins lengur hjá Hróð og þar á meðal er hryssan okkar Duld frá Víðivöllum fremri sem er móðir Búts frá Víðivöllum fremri og systir Seims frá Víðivöllum fremri. Við vorum bara með þessa einu hryssu í girðingunni hjá Hróð. En hryssurnar hjá honum voru alls 12.     Mikið betri var útkoman hjá Alexander frá Lundum II. Af þeim 18 hryssum sem voru hjá honum, sást fyl í 15. 3 hryssur (þar af 2 hryssur sem komu mjög seint í girðinguna)  taldi  Dana dýralæknir líklegt að væru með fyli, en þessar þrjár hryssur verða eitthvað áfram hjá honum.  Þessi góða útkoma hjá Alexander eru gleðifréttir  og við erum  spennt að fá undan þessum velættaða fola , sem sýnist sérstaklega geðgóður og þægilegur í umgengni. Við vorum með 7 merar hjá honum og eru þær allar fengnar.     Og í leiðinni var sónað undan heimahesti,  honum Reit frá Víðivöllum fremri, þetta er 2 vetra hestur  undan Duld frá Víðivöllum fremri og Flugari frá Kollaleiru. Reitur er nú sagður vera hesturinn hennar Dagrúnar,  þau eiga í alveg sérstöku og nánu sambandi. Stundum virðist sem að Reitur líti á Dagrúnu sem  leikfélaga sinn og henni leyfist allt gagnvart folanum og kemur hann hlaupandi til hennar ef hún kallar á hann. Það voru 2 merar hjá Reit. Önnur var Vist frá Valþjófsstað 2 og hin var Vaka frá Valþjófsstað 2, 1. verðl. hryssa sem Dagrún keppti mikið á og vann á henni m.a. barnaflokk á Fjórðungsmóti á Hornafirði árið 2002. Friðrik á Valþjófsstað  átti Vöku en gaf okkur hana fyrir nokkrum árum. Það hefur gengið mjög illa að fá fyl í Vöku . Hún var sprautuð núna  til að láta hana ganga og það virðist hafa gengið að þessu sinni og Vist er líka fengin. Góðar fréttir fyrir okkur að Vaka er nú fengin , gæðingshryssa sem við vildum gjarnan eiga meira undan. En það eru komin 3 afkvæmi undan henni, það fyrsta sem var hryssa var seld suður í Borgarfjörð, svo fæddist grá hryssa undan Gust frá Hóli og  fékk Dagrún að eiga helminginn í henni það er 1. verðlauna hryssan  Mæra frá Valþjófsstað sem er eins og móðir sín mikill gæðingur.  Svo er til tveggja vetri  hryssa undan Bút. Vaka er 19 vetra. Vist er hálfsystir Vöku, en við höfum ekki haldið henni fyrr en núna.      Hér má sjá Vist og Stefán á Útnyrðingsstöðum árið 2007    Svo er rétt að segja  frá því að eftir að kynbótasýning í sumar á Mæru (hryssunnar þeirra Dagrúnar og Frissa) gekk ekki sem skyldi (það átti að hækka hana í einkunn), ákvað Dagrún að skylja hana eftir hjá Óskasteini frá Íbishóli , hún er fengin og væntingar standa til að það  fæðist gæðingur næsta vor (Dagrún óskar eftir jörpum gæðingi).     Dagrún og Mæra í ágúst 2012, en nú er Mæra komin í barneignafrí.  Óskasteinn frá Íbishóli á Landsmóti 2012, í hópi afkvæma undan Huginn frá Haga, Guðný á Bessastöðum tók myndina.    En fréttunum er hvergi lokið að þessu sinni. Við ákváðum að nota ferðina hjá dýralækninum og láta gelda nokkra fola.  Fórum því á sunnudaginn í graðhestagirðinguna að smala saman þeim hestum sem átti að gelda,  en það gekk ekki betur en svo að við náðum bara 2 folum af 4 sem átti að gelda. En þeir hinir verða þá bara að bíða betri tíma. Reitur var hér heima  í verkefni en var geltur ásamt 1 öðrum fola frá okkur. Geldingin gekk vel og vesenislaust og folarnir fóru svo aftur í graðhestagirðinguna.     Svo örmerktum við og tókum DNA sýni úr nokkrum  folöldum , folöldin í ár eru eins og áður hefur verið sagt frá bara merar, loksins, lúxus.     Og á morgun eru Valli og Dagrún að fara til Rvk í brúðkaup hjá frænda okkar (Ingvar,systursonur Valla) og svo strax á mánudaginn byrja smalamennskur haustsins     </description>
Önnur ræktun en hrossarækt
      <description>Við Skotta (aðallega Skotta) höfum verið nokkuð duglegar í sumar að rækta. Í garðinum eru hindber, jarðaber, rifsber, nokkrar káltegundir, baunir, radísur, misheppnaðar gulrætur, sítrónumelissa, auðvitað kartöflur og ýmislegt fleira. Innan dyra eru krydd-og tómatplöntur o.fl. Við pallinn er graslaukur og fínu steinhjónin frá tengdamömmu.</description>
Hryssuár 2012, staðfest
      <description>Duld kastaði rauðri hryssu undan Sólon frá Skáney 15.júlí. Það eru miklar líkur á að hryssan sú verði ákaflega faxprúð, hvort sem horft er til móður eða föðurættar. Duld kastaði niður á eyrum og vildi svo ekki vera með hestastóðinu, heldur hélt sig afsíðis þar til hún var sótt, til að fara með hana í girðingu hjá Hróð frá Refsstöðum. Duld og dóttirEigum ekki lengur von á að Rönd kasti þetta árið, en Varða kastaði 10. júlí, rauðri hryssu undan  Bút. 5 folöld fædd þetta árið, allt hryssur sem er mjög, mjög óvanalegt hér á bæ.Varða og dóttir</description>
Íslenski hesturinn
      <description>Það sýnir sig aftur og aftur að íslenski hesturinn er gæddur töframætti og laðar að sér fólk víðsvegar um heiminn.  Við fengum sænska stúlku í heimsókn (Elín Skogsberg). Hún á hest frá okkur (Bata) og kom við á leið sinni um Ísland til að fá að sjá móðir hans, systkini og frændlið. Elín og Mær (mynd af facebook síðu Elínar)</description>
Stóðhestatíð
      <description>Hryssurnar okkar sem halda á í ár eru flestar komnar til graðhesta, við bíðum þó enn eftir að Duld og Rönd kasti. Varða er köstuð rauðri hryssu undan Bút, mynd af þeirri hryssu kemur seinna á bloggið. Valli fór með Víf norður í Skagafjörð, þar verður hún í girðingu hjá Hágangi frá Dýrfinnastöðum. Glæða, Sonnetta, Gára, Vin og Brák eru komnar í girðingu hjá Alexander. Þangað fer líka Varða og svo Rönd þegar hún kastar. Duld fer undir Hróð frá Refsstöðum. Valli og folaldið hennar Sonnettu                       Valli, Gára og moldótta hryssan hennar</description>
Hryssuár ?
      <description>Tvær hryssur köstuðu í nótt, þær Sonnetta og Gára. Bæði folöldin eru undan Hnokka frá Þúfum. Sonnetta eignaðist leirljósblesótta hryssu og Gára moldótta hryssu.</description>
Glæðudóttir
      <description>Í gær kastaði 1 hryssan. Dagrún Drótt er lukkulegur eigandi að rauðblesóttri hryssu undan Glæðu og Blæ frá Miðsitju. </description>
Prins
      <description>Helga Rósa Pálsdóttir var að frumtemja fyrir okkur trippi s.l. haust. Hún eignaðist svo eitt af þeim, 4 v. rauðan hest undan Bút og Únsu. Sótti hann í gær til að halda áfram með tamninguna.</description>
Mær
      <description>Mær er undan Maddónu frá Sveinatungu og Ófeigi frá Hvanneyri. Mær er 26 vetra og hefur eignast 16 afkvæmi. Í vetur tók Valli eftir því hún gekk ekki heil til skógar, líklega hefur hún dottið á svelli og laskast í afturparti, var stirð og átti ekki auðvelt með hreyfingar. Við tókum hana inn og hún braggaðist ágætlega, en orðin öldruð svo líklegt er að hún prýði ekki hrossahópinn okkar mikið lengur. Eins og sést af þessum stóra hópi afkvæma var hún frekar lítið notuð til reiðar eftir að hún hafði hlotið kynbótadóm. Viljug og skemmtileg hryssa og ber arfgerð fyrir vindóttu og á eru nokkur afkvæmi hennar vindótt.  Afvæmi hennar hafa flest reynst ágætlega, nokkur eru erlendis í Svíþjóð, Danmörku og USA. Síðasta afkvæmi hennar er veturgamall rauður hestur undan Markhúsi frá Langholtsparti. Við eigum tvær hryssur undan henni, önnur er undan Gusti frá Hóli og hin undan Gaum frá Auðholtshjáleigu þær taka væntanlega við því hlutverki að skila afkvæmum af þessum meiði. Í gær fengum við póst og myndir frá ungri stúlku í Svíþjóð sem á hest sem hún er mjög ánægð með undan Mær og Baldri frá Bakka. Þessi hestur heitir  Bati og er fæddur 1995. Mynd af Mær , tekin í maíbyrjun 2012 Kufl undan Mær og Otri fæddur 1992, hann er í SvíþjóðBati undan Mær og Baldri frá Bakka, fæddur 1995, er í Svíþjóð</description>
Stóðhestur  sem verður til afnota á Víðivöllum fremri
      <description>Stóðhesturinn Alexander frá Lundum II verður til afnota í sumar hjá okkur, brúnblesóttur hestur undan Kvisti frá Skagaströnd og Auðnu frá Höfða. Þetta er þriggja vetra foli. Kvistur er með dóm upp á  8,58. Og þar inni eru 9-ur fyrir skeið,tölt, brokk og vilja og geðslag. Auðna er frábær stóðhestamóðir.     Ef þú hefur áhuga á að fá að setja meri undir hann hafðu endilega samband í síma 863-5215 eða sendu okkur meil valli@fljotsdalur.is.          Alexander frá Lundum II      Kvistur frá Skagaströnd  </description>
Eldhúsið nýuppgert
      <description>Þegar við fórum í að endurnýja innvolsið í eldhúsinu í apríl var markmiðið að ljúka framkvæmdum fyrir sauðburð. Það tókst ekki alveg en nú er flestu lokið, aðeins eftir að mála og spasla og ganga frá í skúffum og skápum. Gólfefnið er korkur og er hreinasta snilld, en rán.....dýrt.Skotta gaf mér þessa fallegu pottaleppa þegar hún kom frá Suður Ameríku</description>
Átvögl
      <description>Þegar tún fara að grænka eiga bændur á tíðum í vök að verjast. Herskarar af álftum herja á túnin og hreindýrin koma í heimsókn. Hreindýrin borga þó fyrir sig, spurning um að senda Svandísi umhverfisráðherra reikning fyrir hagagöngu álftanna.</description>
Sauðburðarveður ?
      <description>Ætti ekki skilyrðislaust að banna svona veðuruppákomur um miðjan maí? Sem betur fer er allt lambfé inni, en sauðburður er nokkuð langt kominn. Hrossin sem eru úti standa í skjóli, nema hluti af stóðinu sem fældist í dag þegar 30 hreindýr bættust í hópinn. Stóðið hljóp út á eyrar og er ekki komið til baka, held ég , en það sést ekki á milli bæja.</description>
Eldhúsframkvæmdir
      <description>Uppfærsla á eldhúsinu í fullum gangi, Þór smiður og Valli handlangari sjá um að setja upp innréttingar.</description>
Skotta á heimferð
      <description>Nú er hún Skotta á heimleið eftir mikla ævintýrareisu. Það var gerð ránstilraun á henni í Ekvador og svo var hún rænd (myndavélinni og fl.) í Perú. Heyrist á henni að Bólivía sé besta landið, ekki rænd þar, enda kannski orðið lítið um verðmæti til að stela í pjönkum hennar. myndinni rændi ég af síðunni hennar Skottu, hundurinn frekar íslenskur útlits</description>
Meðan beðið er
      <description>En nýja eldhúsið er ekki komið í gagnið, við þurfum að borða eins og vanalega. Gamla stofan var lögð undir og gegnir nú hlutverki eldhúss og búrs. Skipulagningin tókst með ólíkindum þ.e.a.s. flest finnst sem þarf að nota.</description>
Framkvæmdir
      <description>Það standa yfir stórframkvæmdir i eldhúsinu. Búið að rífa allt út úr því og undirbúa fyrir nýja innréttingu.Vonandi verður eldhúsið tilbúið fyrir sauðburð, alltaf gott að miða við eitthvað , ef  það eru ekki jól, páskar, ferming, er sauðburður ágætis viðmið.</description>
Skoðunarferð
      <description>Í gær fórum við að kíkja á 4 vetra hryssurnar sem eru í tamningu. Dikta og Eftirtekt eru á Reyðarfirði hjá Hans Kjerúlf og Hyggja hjá Helgu Rósu á Norðfirði. Það lítur ágætlega út með þær allar. Dagrún tók myndir og nokkrar eru komnar í myndaalbúm hér á síðunni.Dikta undan Glæðu frá Sveinatungu og Glotta frá Sveinatungu</description>
Veiðieðli
      <description>Í sumar var Táta sífellt að veiða hænurnar, elti þær uppi og æstist mjög við að þær fjarðrafokuðust um út um allt. Ég reyndi að afsaka hana  með því að" hún væri nú bara hvolpur". Valli hænueigandi var ekki sáttur, skiljanlega, missti í ginið á henni nokkrar hænur. Í vetur fannst okkur að hún hefði alveg tapað áhuganum á því að veiða hænurnar, virti þær ekki viðlits þótt þær væru að viðra sig. En.... svo uppgötvaði Valli að hann vantaði hænur, saknaði sérstaklega einnrar svartrar. Við létum okkur detta í hug að bæjarhrafnarnir hefðu kannski veitt þær, en þeir hafa verið aðgangsharðir í vetur , alveg heim að dyrum. Svo.... einn daginn sér Valli að Táta kemur röltandi með hænu kjaftinum og stefnir heim bælið sitt. Hænan var að vísu löngu dauð, en nú vitum við hreint ekki hvort hún hafi fundið hænuna dauða, eða leikið á okkur með áhugaleysinu sem við þóttumst sjá.Haninn stendur vörð, myndir  Dagrún Drótt                            Sakleysið uppmálað</description>
Sauðfjárbændur
      <description>Aðalfundur sauðfjárbænda á Héraði og Fjörðum var haldinn í Végarði 9. mars sl. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa voru veittar viðurkenningar, glæsilegur kvöldverður var fram borinn og Fljótsdælingar sáu um glens og grín. Sigurður Eyþórsson framkæmdastjóri flutti erindi Gjöf sauðfjárbænda til Þórarins Lárussonar fv. ráðunauts</description>
Sónarskoðun
      <description>Í vikunni voru ærnar á bænum sónarskoðar. Að vita hve mörg lömb koma úr hverri á er mjög til hægðarauka á sauðburði. Hægt að vakta einlemburnar betur til að koma undir þær öðru lambi og gera betur við tví-og þrílembur en einlembur. Þarna kemur líka í ljós ef hrútarnir hafa ekki verið að standa sig þ.e. hvort margar eru geldar eða hafa látið fóstri. Útkoman var lakari en á síðasta ári þ.e. heldur fleiri geldar ær. mynd Dagrún Drótt</description>
Ístölt Austurlands 2012
      <description>Í gær fór fram Ístölt Austurlands 2012, á Móavatni við Tjarnarland. Gurri varð í 2 sæti í B flokki á Bút og í 5 sæti í opnum flokki í tölti.  í fyrra keppti Gurri á Bút í A flokki á ístöltsmótinu og varð þá í 3 sæti. Bútur er leirljós 7 vetra stóðhestur undan Duld frá Víðvöllum fremri og Flygli frá Leirárgörðum.  Í gær fór einnig fram í Borgarnesi  töltkeppni KB mótaraðar. Glæta frá Sveinatungu var þar í efsta sæti 1 flokks. Glæta er undan Draumey frá Sveinatungu og Grána frá Svignaskarði.Hans Kjerúlf á Stórval, Guðröður Ágústsson á Bút, Stefán Sveinsson á Rós og Þorbjörn Mattíhasson á Vöku frá Hólum</description>
Í fjárhúsunum
      <description>Tók myndir af ungfénu okkar og setti eina mynd hér á bloggið ,ef fólk langar að sjá.     </description>
Meira um skóginn
      <description>Eins og áður hefur verið minnst á er skógræktin okkar í fjallinu. Við Skotta og Ingi Valur sáum að mestu leyti um að planta og  það var oft erfitt að bera plönturnar á bakinu þegar plantað var langt uppi í fjalli. Aftur á móti var þetta prýðis líkamsrækt. Lítið hefur verið plantað s.l tvö ár, enda búið að planta í stóran hluta girðingarinnar.Fallegar sjálfsáðar birkiplöntur.Skógurinn þrífst vel í giljunum </description>
Skógrækt
      <description>Við gerðum samning um nytjaskógrækt árið 1993, sá samningur var endurnýjaður fyrir stuttu síðan. Svæðið sem skógræktin er á er um 160 ha, að mestu fjalllendi. Það tók nokkur ár að sjá árangurinn koma í ljós, en nú er afgirta landið skógi vaxið og með friðun landsins hefur annar gróður  aukist mjög s.s. berjalyng, sjálfsáð birki og graslendi. Meira að segja hrútaberjalyng er farið að sjást. Ekki spillir að sveppir vaxa í trjálendinu, sem varð til þess að þeir hafa bæst við matarflóruna hér á bæ.Við Táta fórum um s.l. helgi að skoða skógræktinaVið höfum mest plantað rússaleriki og svo furu. En það er dálítið af greni og öðrum tegundum með. Nú stendur til að fara að grisja, eða bila eins og Héraðsskógafólk vill nefna grisjun þegar trén hafa ekki náð 10 cm (sverleiki stofns að meðaltali). Held samt að þó nokkuð af svæðinu sem taka á fyrir séu trén orðin sverari en 10 cm. Kannski verður þetta grisjun. Ánægjulegt þegar skógurinn fer að gefa af sér afurðir.Það eru falleg gil og klettamyndanir í skógrætargirðingunni. </description>
Ístölt Freyfaxa
      <description>Það styttist í ístölt Freyfaxa sem haldið verður á Móavatni við Tjarnarland 25. febrúar n.k. Í fyrra var frábært veður og ísinn góður þegar ístöltið fór fram. Dagrún Drótt tók fullt af myndum, ég setti nokkrar þeirrar á síðuna til að rifja upp stemminguna.mynd Dagrún Drótt</description>
Lagarfljótsormurinn
      <description>Lagarfljótsormurinn, afkvæmi hans eða eitthvað annað..... humm..... dæmi nú hver fyrir sig. Eru þetta e.t.v. afleiðingar af vatnaflutningum Jöklu yfir í Fljótsdal og ormurinn að villast í grugginu. Gott hjá Hirti að halda sig í skjóli við myndatökuna.http://ruv.is/frett/er-thetta-lagarfljotsormurinn</description>
Vetrartíð
      <description>Í fyrrinótt snjóaði þungum og blautum snjó sem lagðist yfir nánast auða jörðina. Þegar sólin fór að skína var verulega fallegt um að litast. Vonandi samt að snjórinn verði ekki lengi svona í trjánum.</description>